Alls var 478 leigusamningum þinglýst á höfuðborgarsvæðinu í mars sl., sem er um 18% fjölgun samninga á milli mánaða. Leigusamningum á höfuðborgarsvæðinu hefur þó fækkað um tæp 2% á milli ára.

Þá var 692 leigusamningum þinglýst á landinu öllu í mars sem þýðir fjölgun samninga um tæp 5% á milli mánaða samkvæmt tölum frá Þjóðskrá Íslands.

Þetta er í annað sinn á sl. sex mánuðum sem leigusamningum fjölgar á milli mánaða. Í lok síðasta árs höfðu samningar ekki verið færri síðan í júní 2008, hvort sem er á höfuðborgarsvæðinu eða á landsvísu.

© vb.is (vb.is)

Á myndinni hér að ofan sést þróun á fjölda leigusamninga á höfuðborgarsvæðinu sl. 2 ár þar sem sést hvernig samningum hefur fjölgað nokkuð yfir sumartímann en snarfækkað aftur þegar líður á veturinn. Líkt og í fyrra fjölgar samningum þó nokkuð í janúar. Í fyrra fækkaði þeim þó aftur þegar líða fór á vorið.

Ef horft er á landið í heild þá var sem fyrr segir 692 leigusamningum þinglýst á landinu öllu í mars,  samanborið við 660 samninga í febrúar. Samningum í mars fækkar um tæp 2% á milli ára á landsvísu.

Fyrir utan höfuðborgarsvæðið var flestum samningum þinglýst á Suðurnesjum eða 93 samningum. Þá var 45 samning þinglýst á Norðurlandi, 30 samningum á Suðurlandi og 26 samning á Vesturlandi.

Þá var4 samningum þinglýst á Vestfjörðum og 15 samningum þinglýst á Austurlandi.

Á síðasta ári var um 9.950 samningum þinglýst á landinu öllu, samanborið við tæplega 10.00 samninga árið 2010. Þar af var um 6.350 samningum þinglýst á höfuðborgarsvæðinu, samanborið við um 6.850 samninga árið 2010. Það sem af er þessu ári hefur 1.420 samningum verið þinglýst á höfuðborgarsvæðinu og 2.220 á landinu öllu.