Alls var 515 leigusamningum þinglýst á höfuðborgarsvæðinu í maí sl., sem er tæplega 25% fjölgun samninga á milli mánaða. Rétt er þó að taka fram að í apríl hafði fjöldi leigusamninga ekki verið færri í fimm mánuði.

Þá var 760 leigusamningum þinglýst á landinu öllu í maí sem þýðir fjölgun samninga um tæp 25% á milli mánaða samkvæmt tölum frá Þjóðskrá Íslands.

Leigusamningum fjölgar nú í fyrsta sinn í fjóra mánuði en fjöldi þeirra kemst þó ekki nálægt því sem hann var þegar hann náði hámarki í september í fyrra. Þá var rúmlega 1.550 samningum var þinglýst.

Á myndinni hér að ofan sést þróun á fjölda leigusamninga á höfuðborgarsvæðinu sl. 2 ár þar sem sést hvernig samningum hefur fjölgað nokkuð yfir sumartímann en snarfækkað aftur seinna um haustið og á fyrstu mánuðum ársins. Svo virðist sem hið sama sé að gerast nú miðað við tölurnar í maí.

Ef horft er á landið í heild þá var sem fyrr segir 760 leigusamningum þinglýst á landinu öllu í maí sl., samanborið við 611 samninga í apríl. Samningum í maí fjölgar um tæp 13% á milli ára.

Fyrir utan höfuðborgarsvæðið var flestum samningum þinglýst á Norðurlandi eða 79 samningum. Þá var 70 samningum þinglýst á Suðurnesjum, 40 samningum á Vesturlandi og 38 samningum á Suðurlandi.

Sem fyrr var fæstum leigusamningum þinglýst á Vestfjörðum, en aðeins 6 samningum var þinglýst þar í maí. Þá var 12 samningum þinglýst á Austurlandi.