Alls var 466 leigusamningum þinglýst á höfuðborgarsvæðinu í maí sl., sem um 12% fjölgun samninga á milli mánaða og 13,7% fjölgun á milli ára samkvæmt tölum frá Þjóðskrá Íslands.

Leigusamningum fjölgaði þannig annan mánuðinn í röð eftir að hafa fækka í tvo mánuði þar á undan. Í janúar sl. var fjöldi leigusamninga sá mesti í einum mánuði frá því í september 2011.

Alls var 713 leigusamningum þinglýst á landinu öllu í maí sem er 10% fjölgun á milli mánaða en um 16% fjölgun á milli ára.

Á myndinni hér að neðan sést þróun á fjölda leigusamninga á höfuðborgarsvæðinu sl. 3 ár. Þar sést hvernig leigusamningum hefur fækkað nokkuð á síðustu árum. Þó svo að nokkur munur sé á milli mánaða og árshluta hefur þróunin legið lítillega niður á við.

Fyrir utan höfuðborgarsvæðið var flestum samningum þinglýst á Suðurnesjum í maí eða 88 samningum. Þá var 69 samningum þinglýst á Norðurlandi, 36 samningum á Suðurlandi og 39 samningum á Vesturlandi. Loks var 12 samningum þinglýst á Austurlandi og þremur samningum á Vestfjörðum.

Alls var 9.083 samningum þinglýst á landinu öllu í fyrra, samanborið við um 9.950 samninga árið 2011 og um 10.400 samningum árið 2010. Þar af var um 5.700 samningum þinglýst á höfuðborgarsvæðinu.

Það sem af er þessu ári hefur um 3.600 samningum verið þinglýst á landinu öllu, þar af um 2.300 samningum á höfuðborgarsvæðinu og um 480 samningum á Suðurnesjum.

© vb.is (vb.is)