Leigusamningum á höfuðborgarsvæðinu fækkaði lítillega á milli mánaða í febrúar, eða um 8,7%, eftir að hafa tekið dágóðan kipp í janúar sl. en þá fjölgaði samningum um tæp 40% sem þá var mesta hækkun á milli mánaða frá því í janúar í fyrra.

Þannig var 526 leigusamningum þinglýst á höfuðborgarsvæðinu í febrúar, samanborið við 576 samninga í desember en 559 samningum var þinglýst á sama tíma árið áður samkvæmt tölum frá Fasteignaskrá Íslands. Þannig nemur fækkun á fjölda samninga 5,9% á milli ára.

Fjöldi leigusamninga á höfuðborgarsvæðinu náði hámarki í september sl. þegar tæplega 840 samningum var þinglýst.

Á myndinni hér að ofan sést þróun á fjölda leigusamninga á höfuðborgarsvæðinu sl. 2 ár. Þar sést hvernig leigusamningum hefur fjölgað jafnt og þétt s.l. 2 ár þó þeim hafi fækkað verulega með haustinu.

Ef horft er á landið í heild þá var 744 leigusamningum þinglýst í janúar sl. sem er 8,7% fækkun á milli ára en 17% fækkun á milli mánaða. Fyrir utan höfuðborgarsvæðið var flestum samningum þinglýst á Suðurnesjum, eða um 70 samningum og á Norðurlandi þar sem 65 samningum var þinglýst. Í febrúar var aðeins 3 leigusamningum þinglýst á Austurlandi og 7 samningum á Vestfjörðum.

Leigusamningar á landsvísu náðu jafnframt hámarki í september sl. þegar um 1.520 samningum var þinglýst. Þar af var um 280 samningum þinglýst á Norðurlandi.