Alls var 656 leigusamningum þinglýst á landinu í nóvembermánuði samkvæmt tölum frá Þjóðskrá Íslands . Eru það nokkru færri samningar en á sama tíma á síðasta ári þegar þeir voru 721 talsins og nemur fækkunin því 9%.

Á höfuðborgarsvæðinu var 416 leigusamningum þinglýst, en þeir voru 457 fyrir ári síðan. Aðeins á Suðurnesjum fjölgaði leigusamningum milli ára, en þeir voru 81 núna samanborið við 74 á síðasta ári.