Í nýlegri könnun Neytendasamtakanna kemur fram að leiguverð íbúða hefur lækkað talsvert, eða allt að 18,5% vegna leigu á stærri eignum.
Á vef Neytendasamtakanna kemur fram að samtökin hafi kannað leiguverð í kjölfar breytinga á efnahagsástandinu.
Þá kemur fram að einungis var kannað verð á leiguíbúðum á höfuðborgarsvæðinu „en gera má ráð fyrir að leiguíbúðir annars staðar séu heldur ódýrari,“ segir á vef samtakanna.
Þá er ekki um að ræða tæmandi könnun á markaðnum heldur voru einungis skoðaðar íbúðir sem eru auglýstar til leigu hjá leiga.is og Rentus. Þá er ekki tekinn með í reikninginn kostnaður sem kann að skapast vegna rafmagns eða hússjóðs, heldur einungis leiguverðið sjálft. Ekki var heldur tekið tillit til þess hvort einhver húsbúnaður fylgdi með í leigunni.