Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 143,5 stig í mars 2015 (janúar 2011 = 100) og hækkar um 1,6% frá fyrri mánuði. Þetta kemur fram í markaðsfréttum Þjóðskrár Íslands .

Síðustu þrjá mánuði hefur vísitalan hækkað um 2,9% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 8,2%. Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.