Leiguverð hefur hækkað mun hraðar síðustu mánuði en fasteignaverð miðað við tölur Þjóðskrár.

Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 121,6 stig í febrúar 2013 og hækkaði um 2,4% frá fyrra mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 2,1% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 10,6%.

Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu var 351,5 stig í febrúar 2013 og hækkaði um 0,2% frá fyrri mánuði. Síðastliðna 3 mánuði hækkaði vísitalan um 0,4%, síðastliðna 6 mánuði hækkaði hún um 2,3% og síðastliðna 12 mánuði hækkaði hún um 5,8%.

Vísitölurnar báðar mæla breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.