Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 138,57 stig í september 2014 (janúar 2011 = 100) og hækkar um 0,7% frá fyrri mánuði. Þetta kemur fram í nýjum tölum Þjóðskrár Íslands .

Síðastliðna þrjá mánuði hefur vísitalan hækkað um 3,6% og síðastliðna tólf mánuði hækkaði hún um 6,7%. Vísitalan sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs.