Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 139,3 stig í janúar 2015 og lækkar um 0,1% frá fyrri mánuði. Þetta kemur fram í markaðsfréttum Þjóðskrár Íslands .

Síðustu þrjá mánuði hefur vísitalan lækkað um 0,1%, en síðustu tólf mánuði hefur hún hækkað um 8,1%. Vísitalan sýnir breytingar á vegnu meðaltali fermetraverðs á höfuðborgarsvæðinu.