Vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu var 140,1 stig í nóvember 2014 (janúar 2011 = 100) og hækkar um 0,4% frá fyrri mánuði. Þetta kemur fram á vef Þjóðskrár Íslands .

Vísitalan hefur hækkað um 1,8% síðastliðna þrjá mánuði og síðastliðna tólf mánuði hækkaði hún um 8,2%.