EVE: Valkyrie, nýr tölvuleikur sem væntanlegur er frá CCP, hlaut mikið lof á E3-leikja- og tækniráðstefnunni sem nýlokið er í Los Angeles í Bandaríkjunum. Leikurinn hlaut meðal annars hin eftirsóttu E3 Official Selection-verðlaun tímaritsins PC Gamer og bandaríska dagblaðsins USA Today, útbreidddasta dagblaðs Bandaríkjanna. Blaðið fór jafnframt lofsamlegum orðum um um leikinn í bæði prent og netútgáfu sinni Þetta þykja nokkur tíðindi í tölvuleikjaiðnaðinum, enda EVE: Valkyrie leikurinn ekki enn kominn út og aðeins sýndur í prufuútgáfu á E3 ráðstefnunni, að því er segir í tilkynningu frá CCP.

Í tilkynningu CCP segir að auk áðurnefndra viðurkenninga útnefndi græju- og afþreygingarsíðan Nerdist.com EVE Valkyrie E3: Editor’s Choice , leikjasíðan Destructoid tilefndi leikinn til tveggja verðlauna ( E3 - Best Shooter , E3 - Game of the Show ), leikjasíðan Joystiq valdi hann einn af 10 bestu leikjum ráðstefnunnar og dagblaðið Metro tilnefndi EVE: Valkyrie til Best of E3 2014 Awards í flokki PC leikja (þar sem leikurinn Battle Cry bar sigur úr býtum).  Fjöldi fjölmiðla sýndi auk þess CCP og leikjum fyrirtækisins athygli á ráðstefnunni og má þar nefna The Telegraph, AOL, DigitalTrends og Forbes - sem öll fara lofsamlegum orðum um EVE Valkyrie.

E3, eða Electronic Entertainment Expo, er ein stærsta leikjaráðstefna heims - og sú allra stærsta sem aðeins er opin fagfólki og fjölmiðlum. Á ráðstefnunni, sem hefur gríðarmikið vægi í tölvuleikjaiðnaðinum, kynna helstu tölvuleikjaframleiðendur heims sínar nýjustu afurðir og fjölmiðlar alltaðar að úr heiminum koma saman til að sjá og heyra af því nýjasta sem er að gerast í tölvuleikjabransanum. Í ár sóttu yfir 30.000 manns ráðstefnuna sjálfa, þar sem rúmlega 200 leikjaframleiðendur kynntu afurðir sínar, auk þess sem milljónir manna fylgdust með því sem þar fram fór gegnum fjölmiðla, bloggsíður og samfélagsmiðla.

Prufuútgáfan af EVE Valkyrie var sýnd á þremur stöðum á E3 ráðstefnunni; stóru sýningarsvæði SONY fyrir PlayStation 4, bás Oculus VR og í sérhönnuðu fundarherbergi CCP.

Ekki hefur verið tilkynnt um útgáfudag EVE Valkyrie. Leikurinn mun koma út á PlayStation 4 fyrir nýjan sýndarveruleikabúnað SONY (Morpheus) og Oculus Rift sýndarveruleikagræju Oculus VR (sem Facebook keypti nýlega, samningur um kaupin er á um 2 billjónir bandaríkjadala) fyrir PC tölvur.