Á næstu vikum kemur á markað 2010 mótelið af Dodge Ram skúffubílnum sem kallaður er 2010 Dodge Ram Heavy pickup. Er um nýtt útlit að ræða en sömu öflugu vélar og áður.

Í frétt hér á vefnum var greint frá því og byggt á erlendri heimild, að í boði verði tvær vélar, þ.e. 5,7 lítra Hemi V-8 og Cummins 6,7 lítra V-8 dísil vél.

Við fengum ábendingar frá miklum áhugamanni um Dodge Ram að þetta er ekki allskostar rétt. Cummins 6,7 lítra dísilvélin í Dodge Ram er sex strokka línuvél, en ekki V-8 og hjá Dodge verksmiðjunum er engar upplýsingar að finna um að verið sé að gera róttækar breytingar á þeirri vél.

Er áhugasömum lesanda þökkuð ábendingin og beðist velvirðingar á rangfærslunni.