Það er ekki allskostar rétt sem mátti lesa út úr frétt hér á vefnum að fasteignamat sé óbreytt á höfuðborgarsvæðinu. Það lækkar á fjölbýli í Garðabæ, Hafnarfirði og Seltjarnarnesi.

Þannig lækkar matsverð fjölbýlishúsa og fjölbýlishúsalóða á Seltjarnarnesi, Garðabæ, Hafnarfirði og Ísafirði um 5% og verður framreikningsstuðull samkvæmt því 0,95.

Er beðist velvirðingar á þessum mistökum.