Lýður Guðmundsson hefur ákveðið að hætta sem forstjóri Bakkavarar og taka við sem starfandi stjórnarformaður fjárfestingafélagsins Exista. Þetta kom fram á aðalfundi Bakkavarar.

Erlendur Hjaltason mun áfram verða forstjóri Exista, en í eldri frétt á vef Viðskiptablaðsins var sagt að Lýður myndi taka við sem forstjóri.

Stefnt er að skráningu Exista í Kauphöll Íslands og unnið er að losa um krosseignartengsl Exista og Kaupþings banka.