Í frétt sænska fréttavefsins DN Economi kom fram að Straumur fjárfestingabanki [ STRB ] hafi á fyrsta fjórðungi ársins selt allan hlut sinn í sænska rafmerkingarfélaginu Pricer eða 4,4% hlut, samkvæmt upplýsingum frá SIS Ägarservice.

Það er ekki rétt.

Samkvæmt upplýsingum frá Straumi seldi fjárfestingabankinn alla hluti sína í Pricer í október á síðasta ári. Vb.is vitnaði fyrr í dag í frétt DN Economi.