Héraðsdómur Reykjavíkur
Héraðsdómur Reykjavíkur
© AFP (AFP)
Vegna athugasemdad Persónuverndar hefur verið tekið fyrir leit í Lögbirtingablaðinu á netinu í auglýsingaflokkum sem varða fjárhagsmálefni einstaklinga og fyrirtækja. Eingöngu er hægt að leita eftir útgáfudagsetningum og útgáfutímabilum, á meðan nýtt útgáfukerfi fyrir blaðið er í smíðum.

Á heimasíðu Lögbirtingablaðsins segir að nýtt útgáfukerfi verði væntanlega tekið í noktun síðar í sumar, en í því verði einnig takmarkaðri leit en verið hefur.

Þeir flokkar sem sæta þessari takmörkuðu leit eru innkallanir, greiðsluaðilögun, greiðsluáskorun, nauðasamningar, nauðungarsala, skiptafundur, veðhafafundur, skiptalok, stefnur, svipting fjárræðis og kaupmáli, og framhald uppboðs.