Bæta þarf aðstöðu til verknáms og starfsþjálfunar í fangelsum landsins og skapa þarf störf sem geta nýst til starfsþjálfunar fanga og þannig verið hluti af námi, að mati nefndar um stefnumótun í menntunarmálum fanga sem skilaði nýlega tillögum um endurbætur þar að lútandi.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra, og Björn Bjarnason, dóms-og kirkjumálaráðherra kynntu skýrslu nefndarinnar á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun. Þar var gerð grein fyrir að strax yrði hafist handa við að hrinda tillögum nefndarinnar í framkvæmd.
Nefndin leggur til að föngum sem kjósa að stunda verknám verði gefið tækifæri til starfsþjálfunar utan fangelsis að uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Þá beri að leita til atvinnufyrirtækja í nánasta umhverfi fangelsa um starfsnám fyrir þá fanga sem hafa leyfi til náms utan fangelsis. Koma þarf til móts við þarfir fanga með stutta skólagöngu að baki m.a. með námskeiðum til að bæta grunnfærni í lestri, stærðfræði og tölvunotkun. Nefndin telur að erfitt sé að stunda nám í dag nema hafa aðgang að Netinu og leggur til að takmörkuð nettenging verði fyrir hendi í öllum fangelsum og rýmri heimildir í opnum fangelsum. Rýmka þurfi heimild til netnotkunar í lögum um fullnustu refsinga.
Þá telur nefndin að huga verði að íslenskukennslu fyrir erlenda fanga sem dvelja um langan tíma í íslenskum fangelsum og að möguleikum fanga af erlendum uppruna sem munu fara úr landi að lokinni afplánun á að stunda fjarnám við menntastofnanir í heimalöndum sínum.