Inspired by Iceland hefur hleypt af stokkunum nýju verkefni þar sem leitað er að „hugrakkasta ferðamanni heims“ eða „the worlds most intrepid tourist“. Þetta er markaðsátak sem er beint til áhugasamra erlendra ferðamanna í gegnum Facebooksíðu Inspired by Iceland.

Leitin er hluti af „Share the Secret“-herferð Inspired by Iceland þar sem Íslendingar eru hvattir til þess að deila leyndarmálum sínum um áhugaverða staði á Íslandi. Stefnan er síðan að nota þær ábendingar sem koma til að þess að búa til ógleymanlegt vikulangt ferðalag fyrir einn heppinn erlendan ferðamann og vin hans.

Inga Hlín Pálsdóttir, forstöðumaður hjá Íslandsstofu, segir að það verði spennandi að sjá hvernig þetta þróist. „Það skiptir miklu máli að við tökum vel á móti gestum okkar og stöndum undir nafni sem vinalegast þjóð í heimi samkvæmt World Economic Forum í fyrra,“ segir hún.