Vinnuhópur aðila vinnumarkaðarins kynnti í dag skýrslu um vinnumarkað og skipulag kjarasamninga í Danmörku, Noregi, Svíþjóð og Finnlandi. Markmið með úttektinni er að leita fyrirmynda í nágrannaríkjum Íslands sem geti nýst við að bæta vinnubrögð við gerð kjarasamninga hér á landi þannig að þeir stuðli að stöðugu verðlagi, auknum kaupmætti launa og samkeppnishæfni atvinnulífsins, að því er segir á vef Samtaka atvinnulífsins (SA).

Á vef samtakanna segir að undanfarin misseri hafi heildarsamtök á almenna og opinbera vinnumarkaðnum fjallað um leiðir  til að bæta vinnubrögð við gerð kjarasamninga. Fjallað hafi verið um mikilvægi þess að mótuð verði sameiginleg sýn allra aðila vinnumarkaðarins á svigrúm atvinnulífsins og samfélagsins til aukins kostnaðar og bættra lífskjara næstu árin. Æskilegt sé að að mótuð verði sameiginlega stefna til að stuðla að vexti atvinnulífsins og efnahagslegum stöðugleika sem byggi á stöðugu gengi og lágri verðbólgu.

Í vinnunni tóku þátt auk SA Alþýðusamband Íslands (ASÍ), Bandalag starfsmanna ríkis og bæja (BSRB), Bandalag háskólamanna (BHM), Kennarasamband Íslands (KÍ), Samband íslenskra sveitarfélaga og fjármálaráðuneytið. Ríkissáttasemjari tók einnig þátt í vinnunni ásamt því að sjá um skipulag hennar.