Starfsmenn sérstaks saksóknara hafa í dag gert húsleitir hjá höfuðstöðvum Sjóvár og Milestone. Ólafur Þór Hauksson staðfesti það í samtali við  Viðskiptablaðið rétt í þessu.

Hann vill ekki gefa nánari upplýsingar um málið en gerir ráð fyrir að send verði út fréttatilkynning síðar í dag.

„Við erum í aðgerðum og getum í sjálfu sér ekki sagt meira. Við munum senda út fréttatilkynningu seinna í dag," segir Ólafur Þór í samtali við Viðskiptablaðið.

Eftir því sem Viðskiptablaðið kemst næst tengist þetta máli sem Fjármálaeftirlitið sendi sérstökum saksóknara fyrr á árinu og varðar fjárfestingarstefnu félagsins.