Starfshópur, sem hefur  það hlutverk að fjalla um leiðir til að lækka kostnað vegna byggingar íbúðarhúsnæðis, á að skila tillögum eftir tvo mánuði eða 1. nóvember.

Umhverfis- og auðlindaráðuneytið birtir í dag tilkynningu þar sem þetta kemur fram en það var Sigrún Magnúsdóttir ráðherra sem skipaði starfshópinn. Í tilkynningunni kemur enn fremur fram að starfshópurinn hafi verið skipaður 30. júní. Skipun hans hafi verið í samræmi við yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 29. maí um ráðstafanir við gerð kjarasamninga á almennum vinnumarkaði.

„Er m.a. vísað til húsnæðismála og sérstakrar yfirlýsingar ríkisstjórnarinnar sem gerð var í samvinnu við aðila vinnumarkaðarins og sveitarfélög þann 28. maí sl. Þar segir að stuðlað verði að því að hægt verði að taka upp sem hagkvæmastar aðferðir við íbúðabyggingar í því skyni að lækka byggingarkostnað," segir í tilkynningunni.

Starfshópurinn mun sem sagt endurskoða byggingarreglugerð og löggjöf á sviði byggingar- og skipulagsmála með það að markmiði að lækka byggingarkostnað.