Hljómsveitirnar Uni Stefson, Young Karin og Hermigervill sem mynda hópinn Les Frères Stefson, munu senda beint út frá tónleikum sínum á opnunarkvöldi tónlistarhátíðarinnar Secret Solstice föstudaginn 19. júní nk.

Les Fréres Stefson halda úti stöð á OZ sem aðdáendur stöðvarinnar geta keypt áskrift af. Á föstudag munu hljómsveitirnar hins vegar opna stöðina í eitt kvöld og senda beint út frá sviðinu á Secret Solstice í gegnum OZ.

Les Fréres Stefson og OZ vilja þannig bjóða heiminum öllum að upplifa sumartónleika á Íslandi í gegnum tölvu, síma eða snjalltæki.

Þeir sem vilja horfa á tónleikana geta skráð sig núna á LFS.TV og fylgst svo með á annað kvöld. Áminning um tónleikana verður send þeim sem skrá sig.