Kim Jong-un, einræðisherra Norður-Kóreu, lét taka fyrrverandi unnustu sína af lífi fyrir níu dögum síðan. Þetta hefur Daily Telegraph eftir Suður-Kóreska dagblaðinu Chosun Ilbo.

Unnustan fyrrverandi hét Hyon Song-wol og var söngkona í popphljómssveit. Var hún sökuð um að brjóta lög um klám.

Auk hennar voru 11 aðrir popptónlistamenn drepnir og voru aðstandendur látnir horfa á aftökuna. Aftökusveitin var vopnuð vélbyssum.

Hér má lesa frétt Daily Telegraph.