Evrópusambandið hefur samþykkt að veita Lettlandi 7,5 milljarða evra (10,5 milljarða dala) neyðarlán en forsætisráðherra Lettlands, Valdis Dombrovskis segir lánið bjarga landinu frá gjaldþroti.
Þetta tilkynnti Dombrovskis í morgun. ESB hafði samþykkt í desember síðastliðnum að veita Lettlandi neyðarlán með þeim skilyrðum að fjárlög landsins yrðu skorin niður um 500 milljónir latsa, eða einn milljarð dala.
Sú vinna hefur tekið talsverðan tíma en nú hefur ríkisstjórnin, sem sett er saman úr fimm flokkum, náð samkomulagi við aðila vinnumarkaðarins og fleiri hagsmuna um stórfelldan niðurskurð á fjárlögum.
Í niðurskurðinum felst meðal annars 105 skerðing á lífeyrisgreiðslum og almenn 20% kjaraskerðing vinnandi fólks en Dombrovskis tók sérstaklega fram í morgun að slíkar ákvarðanir hefðu verið mjög erfiðar, en þó nauðsynlegar.