Lexus umboðið opnaði nýlega glæsilegan sýningarsal við Nýbýlaveg og hélt af því tilefni fögnuð. Mikið var um dýrðir og margt um manninn. Kokkalandsliðið sá um veitingar og stóð vel undir nafni. Bæjarstjórinn í Kópavogi, Gunnar I Birgisson, var mættur og var að vonum ánægður með þessa nýju viðbót við bæjarfélagið. AVH akrkitektúr, verkfræði, hönnun sá um hönnunina á sýningarsalnum og má með sanni segja að þeim hafi tekist afar vel til, enda er nýji salurinn án efa einn glæsilegasti bílasýningarsalur landsins.