Stefán Sigurðsson, sölustjóri Lax-á, reiknar með því að eitthvað af lausum veiðileyfum muni fara inn á vefinn agn.is á næstu dögum, jafnvel fyrir helgi. Annars segir hann að veiðileyfasala hafi gengið mjög vel hjá Lax-á og því sé ljóst að framboðið á agn.is verði ekki jafnmikið og undanfarin ár. Þó muni til dæmis einhverjir dagar í Blöndu fara í vefsöluna.

Veiðileyfi eru þegar komin á vefinn hjá söluvefnum veida.is. Þar má til dæmis finna veiðileyfi í Fremri-Laxá, Mýrarkvísl og Laxá í Refasveit. Hreggnasi er líka kominn með einhver laus leyfi á vef sinn, hreggnasi.is.