Sigurður Ingi Jóhannsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, hefur ákveðið að veiðidagar rjúpu í ár verði tólf talsins sem skiptast á fjórar helgar á tímabilinu 25. október til 17. nóvember næstkomandi.

Leyfileg heildarveiði á rjúpum er 42.000 rjúpur og er miðað við 6-7 fugla á hvern veiðimann. Áfram verður sölubann á rjúpum og er Umhverfisstofnun falið að fylgja því eftir. Að óbreyttum forsendum er lagt til að þetta fyrirkomulag haldist að minnsta kosti næstu þrjú ár.

Ákvörðunin er byggð á grunni ráðgjafar Náttúrufræðistofnunar Íslands sem unnið hefur vísindalegt mat á stærð veiðistofns rjúpunnar og veiðiþoli hans, og ráðgjafar Umhverfisstofununar um stjórn rjúpaveiðanna.

Í tilkynningu frá ráðuneytinu segir að rjúpnastofninn sé ekki stór um þessar mundir. Þó sé stofnmælingin ívið hærri en í fyrra og vísbendingar um að viðkoma stofnsins hafi verið nokkuð góð í sumar.