Uppfærð umsókn Eykon Energy ehf. að leitar og vinnsluleyfi á Drekasvæðinu er nú komin í hefðbundið ferli hjá Orkustofnun. Eins og áður hefur komið fram hefur CNOOC International Ltd., eitt af stærri olíufélögum heims, gengið inn í umsókn Eykon sem sótti upphaflega um leyfi hjá Orkustofnun árið 2012. Eykon var gefinn frestur til 1. júlí 2013 til að tilgreina samstarfsaðila umsóknarinnar. Að sögn Heiðars Más Guðjónssonar, stjórnarformanns Eykon, voru viðræður við mörg fyrirtæki, bæði asísk og evrópsk, og varð CNOOC fyrir valinu vegna metnaðarfyllri rannsóknaráætlunar en hjá öðrum.
Yfirferð kláruð í ágúst
„Næsta skref er að fara yfir umsókn Eykon og kanna fjárhagslega og tæknilega getu samstarfsaðilans og samvinnu þessara tveggja fyrirtækja," segir Skúli Thoroddsen, lögfræðingur hjá Orkustofnun. Því næst verður leitað umsagnar hjá PricewaterhouseCoopers og Íslenskum orkurannsóknum, sem eru ráðgjafar Orkustofnunar í málum sem þessum. Að sögn Skúla þarf einnig að taka afstöðu til þess svæðis sem Eykon sótti upphaflega um en því svæði hefur nú verið úthlutað til annarra. Skúli gerir ráð fyrir því að Orkustofnun muni klára yfirferð í byrjun ágúst.
Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu. Áskrifendur geta nálgast blaðið undir liðnum tölublöð hér .