Greiningardeild Landsbankain spáir því að vísitala neysluverðs hækki töluvert í september eða um 1,4%. Gangi spáin eftir mun 12 mánaða verðbólga mælast 4,3% í stað 3,4% nú.

Greiningardeild Glitnis spáir hinsvegar 1,2% hækkun milli ágúst og september.

"Verðbólga var 6,9% í upphafi árs og lækkaði jafnt og þétt og náði lágmarki í 3,4% í ágúst. Margt kemur til sem veldur mikilli hækkun í september. Mest vegur verðhækkun á fatnaði vegna loka á sumarútsölum. Húsnæðisverð heldur áfram að hækka og búast má við verðhækkun á matvöru sem og ýmsum árstíðabundnum verðhækkunum," segir greiningardeild Glitnis.


Hagstofan mun birta niðurstöður verðmælinga sinna 12. september, að sögn greinignardeildar Landsbankans.