Hinrik Sigurður Jóhannesson er nýr framkvæmdastjóri mannauðs og ferla hjá Advania og Sigrún Ósk Jakobsdóttir hefur tekið við sem mannauðsstjóri. Advania hefur að undanförnu ráðið til sín fólk á ýmsum sviðum og eru fimmtán störf til viðbótar auglýst á heimasíðu þeirra .

Hinrik Sigurður er með CandPsyk-gráðu frá háskólanum í Árósum. Í reynslubankanum eru störf við forritun, tölfræði, ráðgjöf á sviði mannauðsmála og ekki síst togarasjómennska. Hinrik Sigurður hóf störf sem mannauðsstjóri Advania árið 2015 og tók nýlega við sem framkvæmdastjóri mannauðs og ferla.

Sigrún Ósk Jakobsdóttir tekur við af Hinriki Sigurði sem mannauðsstjóri Advania. Hún hefur starfað í mannauðsdeild fyrirtækisins í fimm ár og þar á undan var hún stjórnendaráðgjafi hjá Hagvangi. Sigrún Ósk er með bakkalárgráðu í sálfræði, meistaragráðu í mannauðsstjórnun og vinnusálfræði og er vottaður markþjálfi.

Á undanförnum mánuðum hefur Advania fengið öflugan liðsauka. María Björk Ólafsdóttir bættist í hóp Microsoft-ráðgjafa, Ragnhildur Einarsdóttir hefur tekið við sem deildarstjóri yfir Dynamics 365 teymi og Vésteinn Sveinsson er nýr deildarstjóri þróunar og samþættingar.

Tveir nýir söluráðgjafar hafa tekið til starfa á rekstrarlausnasviði, þeir Kristján Pétur Sæmundsson og Geir Jóhannsson. Íris Dögg Kristmundsdóttir og Linda Björk Waage eru nýir tækni- og þróunarstjórar og Guðrún Davíðsdóttir er nýr verkefnastjóri verkefna- og þjónustustýringar.