Þinglýstum leigusamningum með íbúðarhúsnæði á öðrum ársfjórðungi fjölgaði um rúm 17% frá því á síðasta ári. Hefur þar með snúið við sú þróun sem var á milli áranna 2011 og 2012 en þá var 14% samdráttur í fjölda leigusamninga, að því er segir í Morgunkorni Greiningar Íslandsbanka.

Fjöldi leigusamninga á öðrum ársfjórðungi í ár var svipaður og hann var á sama tíma á árunum 2009-2011 en þá var leigumarkaðurinn með íbúðarhúsnæði afar líflegur sögulega séð. Til dæmis hefur fjöldi leigusamninga á öðrum ársfjórðungi í ár meira en tvöfaldast frá árunum 2006 og 2007.

Það sem af er ári hefur leigusamningum með íbúðarhúsnæði fjölgað um 8,2% miðað við sama tímabil árið 2012. Jafnframt hefur fjöldinn aukist um 8,8% milli maí og júní. Mikil árstíðasveifla er í fjölda þinglýstra leigusamninga. Þeir eru fæstir á veturna en síðan fjölgar þeim frá vori til upphafs skólaárs á haustin þegar fjöldinn nær hámarki.

„Samhliða því að þinglýstum leigusamningum fjölgar hefur vísitala leiguverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkað. Nemur hækkunin 10,5% frá maí 2012 til maí 2013 skv. tölum sem Þjóðskrá Íslands birti í síðasta mánuði. Raunverðshækkunin er um 7% á sama tímabili. Minni hækkun var á vísitölu íbúðaverðs á höfuðborgarsvæðinu á tímabilinu, eða 6,5% að nafnvirði og 3,1% að raunvirði skv. tölum frá Þjóðskrá Íslands og Hagstofunni. Leiguverð hefur hækkað um 8,5% að raunvirði frá því að Þjóðskrá Íslands hóf mælingar á því í janúar 2011 fram í maí 2013. Á sama tíma hefur vísitala húsnæðisverðs á höfuðborgarsvæðinu hækkað um 3,8%,“ segir í Morgunkorninu.