Kaupsamningum á fasteignamarkaði fjölgaði um 2,3% á milli mánaða, samkvæmt upplýsingum Landssamtaka bandarískra fasteignasala. Bloomberg-fréttaveitan segir að í síðasta mánuði hafi salan ekki verið minni í átta mánuði samfleytt og séu væntingar um að í haust megi gera ráð fyrir að líf hafi færst yfir íbúðamarkaðinn.

Upplýsingar Bloomberg benda til að fasteignaverð hafi hækkað um 9,4% á milli ára.

Bloomberg hefur jafnframt eftir fjármálasérfræðingi í Bandaríkjunum, að þótt atvinnuleysi sé enn mikið þá virðist sem þeir sem hafi vinnu séu þeir sem helst hugsi sér til hreyfings.