Gjafavöru- og húsgagnaverslunin Líf & List í Smáralind hagnaðist um 113,8 milljónir króna á síðasta ári borið saman við 125,1 milljón árið áður. Þetta kemur fram í ársreikningi fyrirtækisins.

Sala Líf & List nam 674,5 milljónum borið saman við 598,4 milljónir árið áður og jókst sala því um 12,7% milli ára. Rekstrarhagnaður nam 145,8 milljónum árið 2016 en var 158,8 milljónir árið 2015.

Eignir Líf & List námu 619,8 milljónum króna í árslok 2016 og var eigið fé 299,3 milljónir. Stærstu eigendur Líf & List eru Oddur Gunnarsson og Áslaug Jónsdóttir. Framkvæmdastjóri Líf & List er Jón Hjörtur Oddsson.