Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq á Íslandi stendur í 1.936,43 stigum eftir að hafa hækkað um 0,73% í viðskiptum dagsins í Kauphöllinni. Það var líf og fjör á hlutabréfamarkaði í dag en heildarvelta viðskipta dagsins nam 5,4 milljörðum króna.

Mest hækkaði gengi bréfa Sjóvá, eða um 4,53% í 364 milljón króna viðskiptum og stendur það nú í 17,30 krónum. Næst mest var hækkun á gengi bréfa Skeljungs, eða um 3,86%, í 1,1 milljarða króna viðskiptum.

Mest lækkun var hins vegar á gengi bréfa Icelandair, eða 1,13%, í 213 milljóna króna viðskiptum. Næst mest lækkun var á gengi bréfa fasteignafélagsins Regins, eða um 0,13% í 137 milljóna króna viðskiptum.

Mestu viðskipti dagsins voru með bréf í Skeljungi, eða fyrir tæplega 1,1 milljarð króna. Einnig voru mikil viðskipti með bréf Marels og námu þau viðskipti einnig tæplega 1,1 milljarði króna.