Félags- og tryggingamálaráðherra hefur undirritað reglugerð sem kveður á um hækkun lífeyris almannatrygginga hjá öryrkjum og ellilífeyrisþegum um 4% frá og með 1. febrúar síðastliðnum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félags- og trygginamálaráðuneytinu.

Hækkunin tekur til allra lífeyrisflokka almannatrygginga og kemur til viðbótar þeirri 3,3% hækkun sem kom til framkvæmda 1. janúar síðastliðinn.

Frá áramótum hefur lífeyrir almannatrygginga því hækkað um 7,4% eða sem nemur um það bil 9.400 krónum á mánuði miðað við óskertar bætur.

Lágmarksframfærsluviðmiði flýtt

Félags- og tryggingamálaráðherra hefur einnig í samráði við forsætisráðherra ákveðið að fela nefnd sem vinnur nú að endurskoðun almannatrygginga að móta tillögur að sérstöku lágmarksframfærsluviðmiði fyrir lífeyrisþega og jafnframt flýta þeirri vinnu eins og kostur er. Lágmarksframfærsluviðmiðið taki meðal annars tillit til hækkunar lægstu launa í nýgerðum kjarasamningum og liggi fyrir eigi síðar en 1. júlí 2008.

„Ofangreindar aðgerðir eru í samræmi við yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar í tengslum við kjarasamninga Alþýðusambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins. Koma þær til viðbótar þeim kjarabótum lífeyrisþega sem tilkynntar voru með yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar í desember síðastliðnum og koma til framkvæmda í áföngum á árinu, fyrst með afnámi makatengingar þann 1. apríl næstkomandi. Þær aðgerðir ásamt þeim hækkunum lífeyris sem taka gildi frá 1. febrúar síðastliðnum nema um það bil 9 milljörðum króna á ári þegar þær verða að fullu komnar til framkvæmda,“ segir í tilkynningunni.