Lífeyrissjóðir Bankastræti 7 hafa fært alla hluti í sína í Icelandair Group á einstaka deildir. Eftir flutning bréfanna fer A-deild Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins með 6,06% hlut í félaginu, B-deild lífeyrissjóðsins fer með 2,63%, Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins séreign fer með 0,10% og Lífeyrissjóður hjúkrunarfræðinga með 0,31% atkvæða.

Samtals ráða Lífeyrissjóðir Bankastræti 7 yfir 439.640.964 hlutum í Icelandair Group a eða 8,79% atkvæða, að því er fram kemur í flöggun til Kauphallarinnar.

Mikil velta hefur verið á markaði með hlutabréf Icelandair Group eða fyrir rúm 2,7 milljarða króna.