Hópur íslenskra lífeyrissjóða ræða við Magma um kaup 25% hlut í HS Orku af Magma Energy, samkvæmt tilkynningu til Kauphallar. Kaupin eru háð skilyrðum og er búist við að þau gangi í gegn í maí næstkomandi. Kaupverð yrði 8,06 milljarðar króna. Í tilkynningunni segir að það sé svipað verð og Magma greiddi fyrir hlutinn.

Þá munu lífeyrissjóðirnir hafa möguleika til þess að kaupa ný hlutabréf til 10. febrúar 2012. Ef rétturinn verður nýttur mun hlutur lífeyrissjóðanna í HS Orku aukast í 33,4%. Kostnaður við slíkt yrði um 4,7 milljarðar króna.

Þá kemur fram að Magma veiti sjóðunum aukin réttindi sem minnihlutaeigandi. Það gerir þeim kleift að skipa stjórnarmenn og koma að borði stærri ákvörðunartökur, svo lengi sem hlutur þeirra er að lágmarki 22,5%.

Tilkynning til Kauphallar .

Hefja áreiðanleikakönnun

Í fréttatilkynningu frá lífeyrissjóðunum kemur fram að ákveðið hafi verið að stíga næsta skref og hefja áreiðanleikakönnun á orkufyrirtækinu. Aðilar hafa komið sér saman um útlínur mögulegra viðskipta og helstu skilmála.

„Viðræðunefndin, sem hópur lífeyrissjóða skipaði til viðræðna við Magma Energy um möguleg kaup sjóðanna á fjórðungshlut í HS Orku, hefur ákveðið að stíga næsta skref í viðræðuferlinu og hefja áreiðanleikakönnun á orkufyrirtækinu.

Aðilar hafa komið sér saman um útlínur mögulegra viðskipta og helstu skilmála. Verði af fjárfestingu lífeyrissjóðanna í HS Orku er gert ráð fyrir að greiddir verði um 8,06 milljarðar króna fyrir fjórðungs hlut, sem er sama verð og seljandi greiddi fyrir hlutinn. Þá hefur seljandi ennfremur boðið sjóðunum að auka hlut sinn í HS Orku í 33,4 prósent með kaupum á nýjum hlutum í HS Orku fyrir 10. febrúar 2012. Áætlað kaupverð hinna nýju hluta er um 4,7 milljarðar króna.

Aðilar eru sammála um að verði af fjárfestingunni verði lífeyrissjóðunum tryggð rík minnihlutavernd með setu fulltrúa lífeyrissjóðanna í stjórn HS Orku og formlegri aðkomu að öllum meiriháttar ákvörðunum á vegum félagsins. Þeir skilmálar eru háðir því að eignarhlutur kaupenda verði ekki lægri en 22,5% í fyrirtækinu.

Hugsanleg fjárfesting lífeyrissjóðanna á hlut í HS Orku er háð ýmsum frekari skilyrðum, þar á meðal áreiðanleikakönnun, sem nú er hafin, sem og endanlegri ákvörðun stjórna lífeyrissjóðanna. Áætlað er að ákvörðun um fjárfestinguna liggi fyrir í maí.“