Stoðir hf. hafa samið um sölu á 60% hlut í Tryggingamiðstöðinni hf. (TM) til hóps lífeyrissjóða og annarra innlendra fjárfesta. Kaupendur eru meðal annars Lífeyrissjóður verzlunarmanna, Söfnunarsjóður lífeyrisréttinda, Sameinaði lífeyrissjóðurinn, Stafir lífeyrissjóður, Festa lífeyrissjóður, Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga, Lífeyrissjóður Vestfirðinga, Sjóður 10 á vegum Íslandssjóða, auk fjárfesta á vegum VÍB – Eignastýringar Íslandsbanka, Virðingar og Auðar Capital. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Stoðum.

Samningurinn hefur verið undirritaður en gerður er fyrirvari um samþykki Fjármálaeftirlitsins og Samkeppniseftirlitsins. „Samningsaðilar vænta þess að skilyrði samningsins verði uppfyllt innan fárra mánaða og að afhending eignarhlutarins geti þá átt sér stað. Engar breytingar eru áformaðar á rekstri TM og mun þessi samningur engin áhrif hafa á stöðu viðskiptavina eðastarfsmanna félagsins,“ segir í tilkynningu.

Stoðir munu halda áfram tæplega 40% hlut. Stefnt er að skráningu TM í Kauphöll á fyrri hluta næsta árs. Stoðir áætla að selja þá hluta af eftirstandandi eignarhlut í almennu hlutafjárútboði.