Slitastjórn Glitnis og tólf lífeyrissjóðir hafa samið um uppgjör skulda.

Í tilkynningu um skuldasáttina segir að rammasamkomulag sé að ræða sem feli í sér að hver lífeyrissjóður um sig og Glitnir muni gera upp kröfur sem aðilar eiga hvor á annan með sambærilegum hætti.

Undir samkomulagið falla allar kröfur aðila, þar með taldar kröfur vegna gjaldmiðlavarnasamninga sem gerðir voru til að draga úr gengisáhættu í eignasöfnum lífeyrissjóðanna.

Undanskildar skuldasáttinni eru ágreiningskröfur sem varða víkjandi og höfuðstólstryggð skuldabréf, þar sem lífeyrissjóðirnir gera kröfur á Glitni umfram það sem slitastjórn hefur samþykkt. Samkomulag er um að vísa þeim ágreiningi til úrlausnar dómstóla.

Fram kemur í tilkynningunni að viðræður um uppgjör gjaldmiðlavarnasamninga hafa staðið yfir frá árslokum 2008. Ekki kemur fram við hvaða gengi er miðað í uppgjöri á gjaldmiðlaskiptasamningunum.

Tekið er fram í tilkynningu um málið að áætlað sé að fjárhagsleg áhrif rammasamningsins á stöðu lífeyrissjóðanna séu innan þeirra marka sem varúðarfærslur í ársreikningum þeirra gera ráð fyrir. Þetta mun þó vera mismunandi á milli sjóða, þar sem nokkrir þeirra geta tekjufært hluta af varúðarfærslu en aðrir þurfa að auka við frá því sem áætlað var. Skýrist það af mismunandi samsetningu krafna og skuldbindinga einstakra lífeyrissjóða.