Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga skiptir um nafn og heitir nú Brú lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga. Fylgir nýju nafni bæði nýtt útlit og ný heimasíða, lifsbru.is.

Brú lífeyrissjóður er 10. stærsti lífeyrissjóðurinn á á landinu og ávaxtar hann lífeyri starfsmanna sveitarfélaga um allt land en hann hefur jafnframt umsjón með rekstri Lífeyrissjóðs starfsmanna Reykjavíkurborgar og Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar.

Var ákveðið í kjölfar stefnumótunarvinnu stjórnar og starfsmanna sjóðsins að finna nýtt og þjálla heiti fyrir sjóðinn, nýja ásýnd og að uppfæra heimasíðu sjóðsins. Segir í tilkynningu frá sjóðnum að Brú sé lýsandi heiti fyrir lífeyrissjóð og rími vel við hlutverk hans, að tryggja örugga afkomu sjóðfélaga sinna og létta þannig leiðina milli æviskeiða.