A-deild Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins hefur aukið við eignahlut sinn í Högum. Sjóðurinn átti 4,85% en er nú komið í 6,35% hlut. Ef aðili fer yfir 5% þá ber útgefanda skylda til að flagga, þ.e. tilkynna um breytingar á atkvæðisrétt.

Viðskiptin áttu sér stað í gær en tilkynnt var um þau fyrr í dag.

Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins B-deild á einnig verulegan hlut í Högum eða um 3,29%. Lífeyrissjóður hjúkrunarfræðinga á einnig 1,1% atkvæða og séreignasjóðir LSR 0,11% atkvæða. Lífeyrissjóðirnir sem ganga saman oft undir heitinu Lífeyrissjóðir Bankastræti 7 eiga því samtals 10,82% hluta í Högum.