Stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna ákvað í dag að lækka vexti á nýjum sjóðfélagalánum, sem bera fasta vexti, um 0,4 prósentustig, úr 4,9% í 4,5%. Lækkunin tekur gildi á morgun, þriðjudaginn 16. ágúst. Vaxtakjör eldri lána, sem og lána sem bera breytilega vexti, haldast óbreytt.

Lífeyrissjóður verzlunarmanna hefur í áratugi tekið þátt í fjármögnun íbúðarhúsnæðis sjóðfélaga sinna, með beinum og óbeinum hætti. Annars vegar með hagstæðum lánum til sjóðfélaga, hins vegar með því að fjármagna Íbúðalánasjóð og forvera hans, sem svo aftur hefur endurlánað almenningi til íbúðakaupa.

Í samræmi við fjárfestingarstefnu lífeyrissjóðsins eru lánveitingar til sjóðfélaga miðaðar við að annað sé eftirspurn eftir lánum samkvæmt lánareglum eins og þær eru á hverjum tíma.

Vaxtakjör á lánum til sjóðfélaga eru tvennskonar. Annars vegar lán með breytilegum vöxtum sem taka mið af markaðsvöxtum íbúðabréfa hverju sinni auk 0,75% álags og hinsvegar lán með föstum vöxtum nú 4,50%.