Lífeyrissjóðir Bankastræti 7 hafa aukið hlut sinn í Bakkavör Group í 5,09% úr 3,8%, samkvæmt tilkynningu til Kauphallarinnar. Markaðvirði viðskiptanna er 1,9 milljarðar króna og var kaupgengið 69 krónur á hlut, samkvæmt upplýsingum frá Markaðsvakt Mentis. Um er að ræða 28.000.000 hluti en gengi viðskiptanna kemur ekki fram í tilkynningunni.

Gengi Bakkavarar stóð í stað í dag og er 69,7 krónur á hlut.