Fjórir lífeyrissjóðir fjármagna kaup á 78 íbúðum fyrir aldraða að Suðurlandsbraut 58-62 sem Grund-Mörkin hefur ráðist í.  Það eru Gildi lífeyrissjóður, Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins, Sameinaði lífeyrissjóðurinn og Stafir lífeyrissjóður sem standa saman að fjármögnun íbúðanna.  Þetta er niðurstaða 1.300 milljón króna skuldabréfaútboðs sem Capacent Fjárfestingaráðgjöf hafði umsjón með samkvæmt tilkynningu.

Grund-Mörkin er félag í eigu dvalar- og hjúkrunarheimilisins Grundar og eru þessi kaup stærsta fjárfesting Grundar í áttatíu ár.  „Í fjölbýlishúsunum í Mörkinni verður boðið upp á fyrsta flokks þjónustuíbúðir fyrir fólk frá sextugu.  Stærð íbúðanna er frá 80 fermetrum og upp í um 140 fermetra.  Þær eru tilbúnar til sölu og afhendingar með vönduðum innréttingum og gólfefnum. Um íbúðarréttar-fyrirkomulag verður að ræða og verði stillt í hóf, enda markmið hjá Grund-Mörkinni að gera flestum kleyft að ráða við það fjárhagslega að flytja í þessar fallegu íbúðir," segir í tilkynningunni.

Árni Guðmundsson framkvæmdastjóri Gildis-lífeyrissjóðs segir í tilkynningu: „Við teljum þetta góða fjárfestingu sem fellur vel að fjárfestingastefnu sjóðsins. Þetta er góð langtíma-fjárfesting fyrir sjóðinn, en fjárfesting í þjónustu fyrir eldri borgara er jafnframt fjárfesting í stoðum íslensks samfélags.“

„Það er ánægjulegt að sjá hvað lífeyrissjóðirnir hafa tekið vel í þetta verkefni og koma inn í það með miklum þunga.  Þjónusta fyrir eldri borgara er mikilvæg íslensku samfélagi og skiptir okkur öll miklu máli,“ er haft eftir Gísla Páli Pálssyni, framkvæmdastjóra hjá Grund-Mörkinni.