Samþykkt var á fjölmennum fundi fulltrúa lífeyrissjóða í Reykjavík í gær að boðað yrði til stofnfundar nýs fjárfestingafélags lífeyrissjóðanna, sem fengið hefur vinnuheitið Fjárfestingasjóður Íslands, í fyrri hluta októbermánaðar ef hljómgrunnur reynist vera fyrir hugmyndinni innan sjóðanna sjálfra.

Þetta kemur fram á vef Landssamtaka lífeyrissjóða (LL).

Þar kemur fram að gerð var grein fyrir hlutverki, tilgangi og starfsemi fjárfestingasjóðsins og drögum að skilmálum hans sem fyrir liggja frá hendi starfshóps á vegum lífeyrissjóðanna. Það sé síðan á valdi stjórnar hvers lífeyrissjóðs að ræða málið í eigin ranni og taka afstöðu til þess á næstu vikum hvort viðkomandi sjóður tekur þátt í að stofna Fjárfestingasjóð Íslands.

„Gert er ráð fyrir að hver og einn lífeyrissjóður skuldbindi sig í upphafi til þátttöku í verkefninu með því að ábyrgjast tiltekið framlag sem nýi fjárfestingasjóðurinn kallar síðan eftir á næstu þremur til fjórum árum þegar fyrir liggja ákvarðanir um fjárfestingar af hans hálfu,“ segir á vef LL.

„Engar upphæðir voru nefndar á fundinum í dag, hvorki um framlög einstakra lífeyrissjóða né um áformað heildarumfang nýja fjárfestingasjóðsins.“

Þá kom fram að gert væri ráð fyrir því að Fjárfestingasjóður Íslands eignaðist hluti í íslenskum fyrirtækjum í öllum greinum atvinnulífsins, einkum þeim sem lent hefðu í erfiðleikum vegna efnahagshrunsins en ættu sér vænlegan rekstrargrundvöll til lengri tíma. Sérstaklega yrði horft til fyrirtækja sem öfluðu gjaldeyristekna eða spöruðu gjaldeyri með starfsemi sinni.

„Fjárfestingasjóður Íslands mun ekki taka þátt í fjárfestingum sem orka tvímælis út frá almennum siðareglum,“ segir á vef LL.

„Sjóðurinn mun viðhafa góða stjórnunarhætti og sýna samfélagslega ábyrgð og ábyrgð í umhverfismálum í starfi sínu.“

Enn fremur kom fram í kynningunni að lögð yrði áhersla á að fyrirtæki, sem fjárfest er í, störfuðu samkvæmt lögum og reglum, virtu alþjóðlega sáttmála um mannréttindi, réttindi launafólks, barnavinnu og umhverfisvernd. Þá yrði í fjárfestingum litið til reglna OECD, Viðskiptaráðs Íslands, Kauphallar Íslands og samtaka launafólks og atvinnurekenda um stjórnunarhætti fyrirtækja og til reglna Sameinuðu þjóðanna um ábyrgar fjárfestingar.

„Markmiðið með starfsemi Fjárfestingasjóðs Íslands er að ná vænlegri arðsemi á fjárframlög hluthafa, þ.e. lífeyrissjóðanna. Sérstakt ráðgjafarráð mun marka fjárfestingastefnu sjóðsins að tillögu sjóðsstjórnar,“ segir á vef LL.