Lífeyrissjóðir landsins áttu samtals um 5,5% eignarhluti í Glitni eða sem svarar til um 13 milljarða króna á gengi föstudagsins 26. september 2008.

Í tilkynningu sem sett hefur verið inn á vef Landssambands lífeyrissjóða kemur fram að breytt eignarhald Glitnis hefur eitt og sér hvorki áhrif á rekstur lífeyrissjóða né  lífeyrisréttindi  sjóðfélaga. Einnig er tekið fram að ástand á fjármálamörkuðum yfirleitt er meira áhyggjuefni en tíðindin af Glitni. Í þriðja lagi segir stjórn LL að lífeyrissjóðir meti áhrif af heildarfjárfestingum sínum og einstökum fjárfestingum til langs tíma. "Hvað varðar eignarhluti í Glitni er ótímabært að meta hverju þeir muni skila þegar til lengri tíma er litið," segir í tilkynningunni. Þar er einnig bent á að fjárfestingastefna lífeyrissjóða sé í stöðugri endurskoðun, ekki síst á þeim tímum þegar óvenjulegt ástand ríkir á fjármálamörkuðum.