Landssamtök lífeyrissjóða hafa gert könnun hjá stærstu lífeyrissjóðum landsins um lánveitingar þeirra til sjóðfélaga á fyrstu 7 mánuðum ársins.
Samkvæmt því sem fram kemur á vef samtakanna hafa lífeyrissjóðirnir lánað 14 milljarða króna til sjóðfélaga á þessum tíma.
Samtökin segja þetta umtalsverða fjárhæð í samanburði við lánveitingar Íbúðalánasjóðs sem námu 33 milljörðum á sama tímabili.
„Af þessum tölum má glöggt sjá að lánveitingar lífeyrissjóðanna hafa sem fyrr mikilvægu hlutverki að gegna í viðskiptum með fasteignir landsmanna á sama tíma og viðskiptabankar og sparisjóðir hafa dregið verulega úr lánum til fasteignakaupa,“ segir á vef samtakanna.