Lífeyrissjóðirnir gera kröfu um að lokið verði við uppgjör vegna gjaldmiðlaskiptasamninga þeirra sem sjóðirnir eiga í gömlu bönkunum áður en þeir koma inn í Fjárfestingasjóð Íslands sem einnig hefur verið kallaður Endurreisnarsjóður Íslands.
Í frétt Viðskiptablaðsins í dag segir Arnar Sigurmundsson, formaður Landssamtaka lífeyrissjóða, að þáttaka þeirra sé alfarið skilyrt við uppgjörið á gjaldmiðlaskiptasamningunum. "Það hefur alltaf legið fyrir að þetta miðaðist allt við það að lífeyrissjóðirnir næðu ásættanlegri lendingu og uppgjöri um framvirka gjaldeyrissamninga. Það er vegna þess að það er mikil óvissa út af þessum samningum og það er ekki enn komin niðurstaða."
Það eru Samtök atvinnulífsins og Alþýðusamband Íslands sem hafa beitt sér fyrir því á vettvangi lífeyrissjóðanna að stofnaður verði á þeirra vegum umræddur fjárfestingarsjóður í því skyni að taka þátt í endurreisn atvinnulífsins. Þessi sjóður yrði væntanlega öflugur með 75 milljarða króna fjárfestingargetu á þremur árum. Frumvarp um breytingu á lögum um lífeyrissjóði var samþykkt á Alþingi í árslok 2008 í því skyni að auðvelda stofnun hans.
Að sögn Arnars veltur þátttaka sjóðanna alfarið á því að niðurstaða fáist í fyrrgreindum gjaldmiðlaskiptasamningum. Við fall viðskiptabankanna var neikvæð staða á gjaldmiðlasamningum lífeyrissjóðanna við þessa þrjá banka tæpir 70 milljarðar króna. Lífeyrissjóðirnir áttu skuldabréf útgefin af bönkunum, samtals rétt um 100 milljarðar króna. Að sögn Arnars nýtist þetta ekki að öllu leyti til skuldajöfnunar en í heildina eru sjóðirnir á milli 15 og 20 sem eru í þessari stöðu og eiga mismunandi upphæðir í bönkunum. Arnar sagði að gríðarlega miklu máli skipti á hvaða kjörum samningarnir yrðu gerðir upp.
Sjá nánar í Viðskiptablaðinu í dag