148 kaupsamningum var þinglýst á fasteignamarkaði í síðustu viku sem er 70% meiri velta en í síðastliðnum ágústmánuði sem var einn sá rólegasti um langt skeið, segir greiningardeild Kaupþings banka.

?Ef fram heldur sem horfir er þess ekki langt að bíða að veltan verði komin í takt við meðaltal síðustu ára eftir fjóra rólega mánuði. Á síðustu 5 árum hefur tæplega 190 kaupsamningum verið þinglýst að meðaltali í viku hverri í október," segir greiningardeildin.

Hún segir að þrátt fyrir að lítil velta síðustu mánaða endurspegli dræma eftirspurn á fasteignamarkaði hafa íbúðaverðslækkanir ekki fylgt í kjölfarið ólíkt því sem gerðist árið 2001.

?Hluti af skýringunni gæti verið að um þessar mundir seljist einkum gæðameiri og betur staðsettar íbúðir á meðan lakari íbúðir lenda frekar í sölutregðu. Því getur hækkun íbúðaverðs verið ofmetin þar sem vísitala íbúðaverðs er að litlu leyti gæðaleiðrétt.

Ef lakari eignir fara að seljast í auknum mæli þegar viðskipti á íbúðamarkaði fara að taka við sér gæti það hinsvegar haft neikvæð áhrif á vísitöluna af sömu ástæðum. Vísbendingar eru um að sú hafi verið raunin árið 2003 þegar verulega dró úr íbúðaverðshækkunum um leið og velta á fasteignamarkaði náði sér á strik," segir greiningardeildin.